Fíllinn hún Nellý...: April 2006

Sunday, April 30, 2006

"Til hvers er geirvörtur?"
Þessa spurningu spurði 8 ára gamli frændi minn við matarborðið áðan. Mamma mín svaraði:,,Á konum?". Frændi min:,,Nei, körlum".
Enginn vissi það...
Gærdagurinn var mjög fínn, fyrir utan þann tíma sem ég leit í stærðfræðibækurnar, mamma og pabbi buðu mér út að borða og hvað skyldi ég hafa valið... hugs, hugs, hugs... ÍTALÍU! mmm... fékk mér tortellini. Svo plataði ég þau til að fara í Vesturbæinn og kaupa gamla ísinn.
Hehehhehe, Ítalía og Ísbúðin í Vesturbænum, good memories! er það ekki Þóra, Jóna, Ari og Steinunn?
Svo ætlaði Þóra að bjóða mér í bíó... eða ég eiginlega made her :P Fórum kl.10 á Rauðhettu. Vá, hún er góð/fyndin! Og svo vorum svo skrítnir gaurar fyrir ofan okkur. Við hlógum, en annar af þeim öskraði, HAAAAHAAAHAAAHAAAA og klappaði.
Svo er þessi dagur ALLUR búinn að fara í stærðfræði, fyrir utan nágranna, og mér er svo illt í hægra handarbakinu eftir að hafa skrifað svo mikið upp aftur!
En... ég verð víst að halda áfram og klára a.m.k. aðra bókina í kvöld.



Ég ætla síðan að þakka Jónu litlu Kleinu fyrir að hafa nennt að lána mér vasareiknir hennar í hvert skipti sem ég var að fara í próf, eftir að ég týndi mínum! Takk fyrir það elsku dúllan mín, þú getur víst ekki gert það á þriðjudaginn :P

Saturday, April 29, 2006

Ég á afmæli í dag...
eeen... samkvæmt pabba verð ég ekki 17 fyrr en kl.11 í kveld.

Wednesday, April 26, 2006

Undan farna daga hef ég komist að hinu ýmsu um mig:
*Ég er pastafíkill.
*Baðkarið er uppáhaldsstaðurinn minn heima hjá mér.
*"Feel good" hljómsveitin mín er The All American Rejects.
*Ég er forvitin manneskja og ekki vitandi suma hluti gengur frá mér.
*Ég elska hugtakið "kenning".
*FFF.
*Ég er virkileg subba t.d. einhvern veginn náði ég að setja íssósu aftan á bol sem Jóna var í.
*Ég vil vera ábyrg en vantar eitthvað til að uppfylla það.
*Ég er heppin með vini.
*Ég er vanaföst, t.d. í hádegismat þá er bara eitt um að velja! Ostaslaufa og kók!
*Ég myndi ekki vilja búa annars staðar en þar sem ég bý. Meina FOKKING HAFNARFJÖRÐUR :D
*Ég nota kommur alltof mikið, og líka semi kommur, en mér finnst þær bara svo sætar :P
Ef ég hefði valdið til að breyta lífi mínu á hvaða átt sem er myndi ég ekki gera það.

Það er einhver taska hérna heima hjá mér frá því á laugardaginn og ég hef ekki hugmynd um hver eigi hana?
Úff, það eru bara tveir dagar eftir í skólanum, tveir dagar eftir sem partur af 3E :(
Svo á ég afmæli í alvöru á laugardaginn. Æ hvað það verður æðislegt að eyða honum í að læra fyrir stærðfræði... eða... hahahha, nei ég mun pottþétt ekki læra undir stæ. þá. Meina prófið er á þriðjudeginum :P
Sjáumst.
Og þarna ef þið eigið "Jumanji"(það er kvikmynd) og viljið leyfa mér að fá hana að láni, endilega látið mig vita...
Takk og bæ.

Sunday, April 23, 2006

Í gær hélt ég upp á afmælið mitt.
Var með svona dinner fyrir vinkonur mínar og svo seinna koma enn meira fólk.
Ég fékk þrjár geðveikar gjafir :)
*Sápukúlur og prumpublöðru frá Sunnu og Þórdísi.
*Blóm frá Tinnu.
*Rósir frá Bjössa, Hrólfi og Togga.
Svo fékk ég líka köku frá Ásdísi og Þóru en ég er ekki viss hvort það var afmælisgjöfin mín eða bara svona partur af henni.
Svo var ég búin að segja öllum að fara og þrífa. Djöfull er ég góð, well ég og þrjár aðrar manneskjur. Arnheiður, Þóra og Steinar stóðu sig helvíti vel að hjálpa mér að þrífa :) TAKK.
En svo var það búið og við stelpurnar ákváðum að kíkja til Hrannars, gamli bekkjarbróðir okkar. Komum þangað og já, Siggi og Co. úr H-bekknum bara öll þar. En svo þarf fólk að fara á klósettið en nei... það er "upptekið" :P hehehhehe. Sem sagt þá var ákveðinn aðili þar inni með einhverri stelpu. Síðan seinna náði Hrannar í svona thing til að opna hurðina, fólk þurfti svakalega mikið að pissa. En sem sagt þá voru þau nakin. Mikið var hlegið af þessi og ÁstarSiggi stakk upp á því að við myndum bara öll vera allsber þegar þau myndu koma út, því þá yrði það ekkert vandræðalegt fyrir þau. Anywho, svo var hægt að komast inn á klósettið en það var ekkert þægilegt ef aður þyrfti að pissa því það eiginlega beint fyrir framan þig var sturtuklkefi sem að þau voru að dunda sér í og maður sá bara rass. En allt endar einhvern tíma og í þetta skiptið var það það að sturtuklefsglerið brotnaði! og ákveðni aðilinn skar sig.
Og þá var allt búið. Fór heim, fékk nokkur komment frá mömmu og pabba. Einhver hefði tekið vínflösku úr ísskápnum sem þau áttu.
Annars mun dagurinn í dag fara í það að lesa félagsfræði, stúdentspróf á þriðjudaginn. Svo er líka efnafræðipróf á morgun, en moi ætlar að skila því auðu.
Bless og takk fyrir mig í gær :)

Wednesday, April 19, 2006

Skólinn er víst byrjaður aftur... eða ekki...
Það kom mér á óvart hvað ég var frekar hress í morgun þegar ég vaknaði. Ólíkt vanalegum morgunvenjum mínum þá bjó ég um rúmið mitt og fékk mér cheerios. Svakalegt! Svo gekk þetta sinn vanagang, ég þreytt en samt ekki eins og venjulega. Ég áttaði mig líka á fyrir alvöru að ég er ekki þessi "snú-snú" týpa. Þess vegna var ég "staur" nær allan tímann í leikfimi. Svo kom matur... Kók og nammi gera kraftaverk, ég reyndar keypti ostaslaufu líka en hún var köld, stór mínus, hún á að vera hituð. Þannig, uppfull af sykri, skemmti ég mér nokkuð vel í íslensku og sögu. Svo bara skóli búinn.
Ég teiknaði mynd handa Marteini og Jóna, eina fyrir hvort þeirra. Og sannlega sagt þá á ég enga framtíð sem teiknari. Æ, þið vitið svona skopmyndateiknarar, ó nei...
Sem minnir mig á það, mig vantar vinnu í sumar! Damn...





Hvern eru þær annars að stæla? Svarið rétt og ég mun gefa ykkur smáköku/r.

"Under the sea... lalalal." Disney still on my mind!
Bæ,bæ

Tuesday, April 18, 2006

"Bonjour, good day, how is your wife?"
Já, Beauty and the beast er án efa með top fimm Disney myndunum. Mig langar að horfa á hana núna... En mín bíður Min ven Tomas og leskaflar í ensku. Ohhh, hví var ég ekki bara búin að þessu?
Svo er mér bannað að vera frammi að horfa á sjónvarpið. Systir mín er að vinna að einhverju verkefni og sjónvarpið myndi bara trufla hana sagði hún. Þannig að ég er bara í herberginu mínu, var að horfa á "Mi gorda Bella"(My fat Valentine) eða eitthvað álíkt. Þetta er svo mikil sápa! Úff.
En sjíss, ég er virkinlega farin að lesa dönsku.
BÆ!