Fíllinn hún Nellý...: May 2006

Sunday, May 28, 2006

NEIIIIIII...

Ohhh... ég ætlaði að breyta bakgrunninum bara svona til að breyta til...

Hvað gerist! Allt eyðilagðist!
Allir tengiliðirnir, farnir!
Allt sem ég var búin að laga og breyta, breytt aftur!

DJÖFULLINN!

Saturday, May 27, 2006

Kosningarvaka í kveld. Sem þýðir að sjónvarpið frammi verður ekki til notkunnar.
Þegar ég var komin heim og var búin að átta mig á því að kosningarvakan væri í kvöld, kíkti ég inn í búr og hvað sá ég?
EKKERT SNAKK!
Já, það er auðvelt að skemmta mér.
Fór á X-men með "bekknum" mínum og með "bekknum" á ég við Beggu, Dabba, Tomma, Steinar og hálfan Ella og auðvitað Pési.

Myndin var spes... Haldið fyrir augun því ég ætla að segja frá henni!
Góði gaurinn í hjólastólinum springur! Svo í endan er andi hans komin í annan líkaman! Rók (Tófa) læknaðist og gat loksins snert Bobby. Jean drap Scott. Svo drepur Wolfarín gaurinn hana í endanum. Magnító varð mannlegur og Mistík líka. Allt í lagi mynd. Ef þið viljið sjá Kelsey Grammer sem bláa loðkúlu (nánast), þá ættuð þið að fara á hana. Svo er líka gaurinn með vængina komma.

Jey, ég náði endursýningunni af survivor...

Vill einhver vera nammifélaginn minn í kvöld (og næstu 5-6 laugardaga)?

Síja...

Thursday, May 25, 2006

Ég náði öllu :D
Það sem ég hló af var einkunnin mín í efnafræði!
Við erum að tala um að ég tók nánast ekkert eftir á öllu misserinu en samt náði ég að hækka mig um heilan og fá freaking 9!!! Hahahhahaha...
Svo lækkaði ég mig í nær öllum hinum fögunum... Helvítis fimleikar! :P heeheheh
Ég er að reyna að losna við fávita hóstann sem ég er með, verð bara inni í dag og catch up on some reading.
Ég elska að lesa bækur! Hef ekki lesið eina sem mig langar til að lesa síðan um jólin, sökum mikils lestrar í skólanum... Æ, hvað get ég sagt, las ekki einu sinni Min vin Thomas... Ohhh, af hverju kíkti ég ekki á dönsku prófið, bara svona til að sjá hvað ég fékk fyrir Min ven Thomas partinn :P

Ég þarf að redda mér Interview with a vampire, mig langar svo að sjá hana! En sem skemmir fyrir er að Tom Cruise og Brad Pitt leika Lestat og Louis.

Ég er farin að lesa

p.s. sáuð þið Unni Birnu detta í gær á ungfrú ísland? HAhahhahahahha

Tuesday, May 23, 2006

Ég hata þetta!!!

Ég er að fá alltof lág laun og ég get ekki gert það!
Ég er asni stundum! Sé ekki hvað ég hef fyrir framan mig!
Mér leiðist að láta öskra á mig! Það lætur mig oftast fara að gráta, inn í mér. Sem brýst út í einrúmi.
Mig vantar mjúka koddan minn.
Ég fæ einkunnirnar mínar á morgun... 7,9,13.
Davincicode er ekki eins góð og bókin!
Ég vil ekki vera veik.
Ég elska mömmu mína.
Og pabba minn.
Og systur mínar.
Og bræður mína.
Og bestu vinkonu mína í heimi, Arnheiði.
Ég veit þið viljið mér allt það besta en stundum hlusta ég bara ekkert á ykkur. Ef ég er að gera eitthvað heimskulegt látið mig vita! Segið mér það aftur og aftur og aftur! Því ég er þrjósk og þegar ég ef ákveðið eitthvað er erfitt að láta mig breyta því!
Ef ég ætti að vera ofurhetja væri ég annaðhvort:
*Bubbles, litla barnalega stelpan sem verður að hafa bangsann sinn og kveikt á ljósinu þegar hún fer að sofa. Sú sem getur talað við íkorna. Sú sem er ljós hærð með tíkó.
*Robin, hjálparhella Batmans. Ótrúlega fimur náungi sem er töffari. Samt ekki nægur töffari til að vera aðalhetja í teiknimynd.
Ef það væri tekin mynd af almúganum tækjuð þið ekki eftir mér, kannski á doppóttu skónum mínum en annars ekki held ég.
Ég ætla að halda áfram að lesa og fara svo að sofa...

Friday, May 19, 2006


Ég er komið í sumarfrí :) það er ef ég hef ekki fallið í einhverju. 7,9,13 ;)

Fór til Ella í gær, hitti skemmtilegt fólk sem bekknum mínum, grillaði eða Steinar gerði það. Horfði á Eurovision, varð disapointed. Tyrkland, Armania komust áfram ERUÐI AÐ DJÓKA! En Silvía komst ekki áfram. Annað sem mér fannst fyndið/ókurteisi var allt búið sem hún fékk, kommon fólk eruð þið í leikskóla! Hún getur ekki hafa hneykslað svona marga! Þessi keppni ásamt fleiri undanförnum, hefur sannað fyrir mér að Eurovision er ekki lengur söngva/lagakeppni, heldur er þetta klíkuskapur og við litla eyjan upp í rassgati erum ekki í henni! Við eigum ALDREI að komast upp úr þessari helvítis forkeppni.

Næst á dagskrá, ferðin í kveld! Ég hlakka svo til :P híhíhíh Ég er ein af 8 manneskjum úr bekknum mínum sem fara. Hinar manneskjurnar eru: Elli, Hrefna, Jórunn, Marta, Svana, Steinar og Ylfa. Þetta verður æði ;) Ég þarf að fara að kaupa mér eitthvað til að borða í ferðinni og skyr er á fokking bannlista!

Sjáumst (helst í kvöld)

Wednesday, May 17, 2006


No me gusta spañol!
Estudio spañol es muy, muy, muy mal!
Tengo que leer capítulo 14-30 en Mundos.
¡Que horror!
Y tengo que saber presente, pretérito perfecto, pretérito indefinido, gerundio, imperativo, sustantivos y artículos, adjetivos, adverbios, números, pronombres, preposiciones.

Ég er subba, var að enda við að hella vatni á spænsku lesbókina. "óvart"
Á hverju sumri verð ég háð ís og þetta virðist sem ætla ekki að bregðast því. Búin að borða tvö íspinna í dag og langar í meira...Allt í lagi, íspinni er ekki það sama og ís! ég veit það! það bara er ekki til ís ís heima hjá mér :( kannski að ég reyni að plata Þóru í að kaupa handa mér ís á eftir...

Sem sagt einungis eitt próf eftir :D Spænska = Rúst! :P hehehehhe, við skulum bara vona það :P

Ég get ekki sagt að ég sé búin að vera full metnaðar yfir prófin, hvað þá núna! Síðasta prófið og ég bara nenni ekki að læra undir það! AARRG! Ég bara hef ekki þolinmæðina í þetta...

mér líkar að skrifa bara í litlum stöfum í tölvum en stórum á blað.

En ég ætla að fá mér íspinna og reyna að halda áfram.

Saturday, May 13, 2006

Ég... Ég er svo sorgmædd núna.

Arnheiður, ég horfði á "Notebook" og þú getur sagt við mig næst þegar við hittumst "I told you so." því ég fór að gráta. Það er ekki annað hægt yfir þessari mynd. Svona stútfull af... ást.

Þessi mynd er klassík. Tvær manneskjur hvor frá sinni stéttinni, verða ásfangnar. Og svo undir lokin deyja þau saman.

Minnir mig smá á Fríðu og dýrið, nema þau deyja ekki. En pælið í því ef dýrið hefði dáið? Hvað þá? Hefði Fríða bara hellt í sig þunglyndislyfjum/áfengi og verið lögð inn? Hefði hún kannski drepið Gustav (Sem hefði drepið dýrið). Aldrei að vita því þetta var jú Disney mynd með happy ending.

Notebook endar vel. Bara ekki týpist vel. Týpist vel þá hefði hún fengið minnið for good og þau lifað happily ever after. En þetta er ekki týpískur endir. Þetta er fallegur endir. Tvær gamlar manneskjur sem elskuðu hvort annað með öllu hjarta og án efa meira, dóu saman.

Þessi mynd minnir mig líka á "Pearl Harbor".

Sem minnir mig á það. Arnheiður, við verðum að fara að horfa á hana aftur.

Annars er verið að kvarta yfir mér núna, á að færa skóna mína úr andyrinu fyrir hana móður mína.
Góða nótt og dreymi ykkur fallega drauma.

Friday, May 12, 2006


Danskan er búin í ár (vonandi), ég þarf örugglega ekki að skrifa/lesa/tala dönsku þangað til í 4.bekk. Úff, þungu fargi er létt af mér. eða nei, hvernig er þetta orðað...? Æ, þið vitið hvað ég meina!

Ég er ánægð. Ég vil dansa. Ég vil halda grill/pottaparty. Ég vil dansa út á götu. Ég er búin með dönskuprófið! :D

Eftir viku verð ég að skemmta mér með skemmtilegu fólki.
Eftir viku verð ég búin í prófunum.
Eftir viku verð Eurovision, yay Eurovision!

Ég er Eurovision drós!

Hver man ekki eftir Eurovision slagar eins og "uuhhh, aaahh, just alittle bit. uuuhh, aaahh, alittle bit more..."

Eurovision voru kvöldin sem maður missti sig yfir snakkskálinn og hamstraði snakkið.
En núna eru nýit tímar og það verður vonandi Eurovisiontjill hjá Ella.

Annars góða helgi, njótið hennar.
Ég veit að ég mun gera það, meina læra fyrir efnafræði... hehehehe
Sjáumst ;)

Wednesday, May 10, 2006

úff, minna en helmingur eftir... einungis 4 próf eftir!

-Andabær (teiknimyndaþættir) dýrka hann. Jóakim talar svo skringilega, Loftur er svaðalega mjór.
-Sama spennan og vanalega í Nágrönnum. Darcy sagði Susan að Karl hafði ekki verið faðir barns Isabellu. Og Boyd vill ganga Ashley í föðurstað. Drama, drama, drama...
-Mi gorda Bella! Þar erum við að tala um drama! Þar höfum við Valentinu sem var feit, en það var eitrað fyrir henni. Hún var send til Spánar og afeitruð. Kom svo til baka grönn og fín, og ætlar að hefna sín á Orestis og fjölskyldu. En hvað er að gerast... Hún er enn ástfangin af Orestis. Draaaamaaaaa...

Ég er svo algjör sjónvarpshóra, ásamt því að vera tíkallahóra og ástar Eva.

Næsta próf er annars danska. Fokkings danska! Ég hata Min ven Thomas! Ég bara kem mér ekki inn í danskar bækur, það er asnalegt. Það sem ég veit er að Thomas er hommi og með aids, seinna deyr hann. og boðskapurinn er...? Ekki fá aids? ég veit það ekki. En guð sé lof fyrir hann Hilmar fyrir að hafa sett glósur úr henni á www.blog.central.is/3emr TAKK HILMAR :)

Ég var að enda við að vinna leik sem heitir 6th grade, munið þið eftir honum? sem sagt tók mig tvo daga, í gær og í dag, sökum lærdóms fyrir jarðfræðiprófið hætti ég í gær. En hahhahaha, þessi leikur sem ég og Vera gátum aldrei unnið, er í raun leiðinlegur :P

Vá mér leiðist og mig langar í ís!

Sunday, May 07, 2006

ZzZzZzZzZzZz...

Saga á morgun og ég get ekki sagt að hún eigi hug minn allan núna.

Rómaveldi = skemmtileg!

Þættir úr sögu vestrænnar menningar = LEIÐINLEG!

Kannski er það þannig að hlutir með löng nöfn eða heiti eru leiðinleg! Nei, Arnheiður þú ert flokkast ekki sem hlutur! Hins vegar brýtur t.d. danska í bága við þessa kenningu. En kenningar eru ekki kenningar nema með undantekningum!

*Regla lífsins 5.39654

Hlutur er leiðinlegur ef þá og því aðeins að það séu 15 eða fleiri stafir í orðinu.

Sönnun:

(i) G.r.f. að við séum með hlut. Þá teljum við stafina í nafninu/heitinu og ef þeir eru fleiri en 14 er hluturinn leiðinlegur.

(ii) G.r.f. að við séum með hlut sem hefur 15 eða fleiri stafi í nafninu/heiti sínu. Við prófum hlutinn, en mjög líklega er hann leiðinlegur.

Af (i) og (ii) leiðir að hlutur sem hefur 15 eða fleiri stafi í nafni/heiti sínu sé leiðinlegur.

Q.E.D.

Athugasemdir:

1. Til eru hlutir sem eru svo leiðinlegir að það skiptir þá engu máli að vera með fleiri en 14 stafi í nafni/heiti sínu.

2. Til geta verið hlutir sem eru úber skemmtilegir sem hafa svaðalega langt, langt nafn/heiti. En það er ekki til í svo miklum mæli.

--Ég er meira að segja farin að tala í sönnunum í stað þess að lesa sögu! Heimurinn er að farast! Forðið ykkur!
Hins vegar ætla ég að sjá til þess að maturinn minn verði ekki kolamoli (Ingibjörg er að grilla), svo að við sjáumst ;)

Saturday, May 06, 2006



Ertu ekki að fokka í mér?
Búin að vera að lesa sögu í nokkurn tíma. Það er ekkert að sögu, mér finnst hún reyndar nokkuð skemmtileg öðru hvoru. EN það er ekki skemmtilegt að lesa sögu með teknó/hiphop í bakgrunninum! Helv. nágrannar!
Síðasta blogg var súrt.
Mig langar svo í pasta! Kannski var ég Ítali í fyrra lífi.
Talandi um fyrri líf, möguleikar hjá mér:
*Ítali
*Vampíra
*Kisa
*Ljón
Endilega tjáið ykkur í kommentum.

Smá upprifjun handa ykkur um púnversku styrjaldirnar :) yay!
Þær voru þrjár
1. 264-241 f.Kr. snerist um yfirráð yfir Sikiley
2. 219-201 f.Kr. Hefnd Hannibals nokkurn veginn, nema það tókst ekki
3. 149-146 f.Kr. örvæntingarfullt varnarstríð Karþagómanna
Mikilvægar manneskjur sem vert er að kunna að segja frá: Hannibal, Scipio, Fabíus Maxímus, Cató eldri


Skemmtið ykkur vel í þeim próflestri sem eftir er :)
Og þið sem eruð búin í prófum, ull á ykkur!

Friday, May 05, 2006


Ég er ekki hálfnuð með þessi elskulegu próf og ég er að missa mig! Ég hlakka svo til að vera búin og fá að eyða nótt með hinum virðulegu 3.bekkingjum ;)
Ohhh... þetta sumar á eftir að vera æðislegt, eins gott fyrir það.
Måske komin með vinnu, sé til með það 22. maí.
En það er komið það tímabil að ánamaðkar stunda sjálfsvíg, hver vill vera hverjum á undan að deyja. Margvíslegar aðferðir eru til s.s.: drekkja sér, fara út á miðja götu í von að bílar sjái þá ekki og keyri yfir þá, taka inn eitur, hengja sig, skjóta sig eða biðja einhvern um að berja sig til dauða. Það er sorglegt að sjá þetta og svo líka óhreinindin. Út um allt eru ánamaðkalík, litlaus og mjó. Það kemur því ekki á óvart ef maður leggur leið sína út að maður missi matarlystina. Æ, þetta er víst bara eðlilegt...

Annars er líf mitt algjörlega ekki lifandi um þessar mundir. Ef ég er ekki að læra, þá er mamma mín að spurja mig
Afhverju ertu ekki að læra?
Við þessari spurningu eru til alveg gasalega mörg svör s.s.: Ég kann þetta, ég er bara að taka mér pásu, ég er búin að fara yfir þetta, og svo framvegis. Mitt vanalega hljómar eitthvað líkt þessu
Ég renn yfir restina í fyrramálið.
Svo sef ég til 9.30-10.00.

Prófin eru indælistími því að það er ekki beint hægt að kvarta undan herberginu mínu. Ég einfaldlega svara
En mamma! Ég er að læra undir próf!
Treystið mér, það virkar ;)

Svo er ég svo svöng en það er bara til snakk og ídýfa... skamm, skamm Ingibjörg fyrir að gera þetta, ég á eftir að enda sem fitubolla!
Ég elska The Cranberries og Yeah, Yeah, Yeahs...

"does anyone care..."