Fíllinn hún Nellý...

Saturday, May 06, 2006



Ertu ekki að fokka í mér?
Búin að vera að lesa sögu í nokkurn tíma. Það er ekkert að sögu, mér finnst hún reyndar nokkuð skemmtileg öðru hvoru. EN það er ekki skemmtilegt að lesa sögu með teknó/hiphop í bakgrunninum! Helv. nágrannar!
Síðasta blogg var súrt.
Mig langar svo í pasta! Kannski var ég Ítali í fyrra lífi.
Talandi um fyrri líf, möguleikar hjá mér:
*Ítali
*Vampíra
*Kisa
*Ljón
Endilega tjáið ykkur í kommentum.

Smá upprifjun handa ykkur um púnversku styrjaldirnar :) yay!
Þær voru þrjár
1. 264-241 f.Kr. snerist um yfirráð yfir Sikiley
2. 219-201 f.Kr. Hefnd Hannibals nokkurn veginn, nema það tókst ekki
3. 149-146 f.Kr. örvæntingarfullt varnarstríð Karþagómanna
Mikilvægar manneskjur sem vert er að kunna að segja frá: Hannibal, Scipio, Fabíus Maxímus, Cató eldri


Skemmtið ykkur vel í þeim próflestri sem eftir er :)
Og þið sem eruð búin í prófum, ull á ykkur!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home