
Ég er ekki hálfnuð með þessi elskulegu próf og ég er að missa mig! Ég hlakka svo til að vera búin og fá að eyða nótt með hinum virðulegu 3.bekkingjum ;)
Ohhh... þetta sumar á eftir að vera æðislegt, eins gott fyrir það.
Måske komin með vinnu, sé til með það 22. maí.
En það er komið það tímabil að ánamaðkar stunda sjálfsvíg, hver vill vera hverjum á undan að deyja. Margvíslegar aðferðir eru til s.s.: drekkja sér, fara út á miðja götu í von að bílar sjái þá ekki og keyri yfir þá, taka inn eitur, hengja sig, skjóta sig eða biðja einhvern um að berja sig til dauða. Það er sorglegt að sjá þetta og svo líka óhreinindin. Út um allt eru ánamaðkalík, litlaus og mjó. Það kemur því ekki á óvart ef maður leggur leið sína út að maður missi matarlystina. Æ, þetta er víst bara eðlilegt...
Annars er líf mitt algjörlega ekki lifandi um þessar mundir. Ef ég er ekki að læra, þá er mamma mín að spurja mig
Afhverju ertu ekki að læra?Við þessari spurningu eru til alveg gasalega mörg svör s.s.: Ég kann þetta, ég er bara að taka mér pásu, ég er búin að fara yfir þetta, og svo framvegis. Mitt vanalega hljómar eitthvað líkt þessu
Ég renn yfir restina í fyrramálið.Svo sef ég til 9.30-10.00.
Prófin eru indælistími því að það er ekki beint hægt að kvarta undan herberginu mínu. Ég einfaldlega svara
En mamma! Ég er að læra undir próf!Treystið mér, það virkar ;)
Svo er ég svo svöng en það er bara til snakk og ídýfa... skamm, skamm Ingibjörg fyrir að gera þetta, ég á eftir að enda sem fitubolla!
Ég elska The Cranberries og Yeah, Yeah, Yeahs...
"does anyone care..."

http://www.boganmeldelser.dk/vis.asp?id=613
googlaðu þessu bara á dk ;)