Fíllinn hún Nellý...

Sunday, May 07, 2006

ZzZzZzZzZzZz...

Saga á morgun og ég get ekki sagt að hún eigi hug minn allan núna.

Rómaveldi = skemmtileg!

Þættir úr sögu vestrænnar menningar = LEIÐINLEG!

Kannski er það þannig að hlutir með löng nöfn eða heiti eru leiðinleg! Nei, Arnheiður þú ert flokkast ekki sem hlutur! Hins vegar brýtur t.d. danska í bága við þessa kenningu. En kenningar eru ekki kenningar nema með undantekningum!

*Regla lífsins 5.39654

Hlutur er leiðinlegur ef þá og því aðeins að það séu 15 eða fleiri stafir í orðinu.

Sönnun:

(i) G.r.f. að við séum með hlut. Þá teljum við stafina í nafninu/heitinu og ef þeir eru fleiri en 14 er hluturinn leiðinlegur.

(ii) G.r.f. að við séum með hlut sem hefur 15 eða fleiri stafi í nafninu/heiti sínu. Við prófum hlutinn, en mjög líklega er hann leiðinlegur.

Af (i) og (ii) leiðir að hlutur sem hefur 15 eða fleiri stafi í nafni/heiti sínu sé leiðinlegur.

Q.E.D.

Athugasemdir:

1. Til eru hlutir sem eru svo leiðinlegir að það skiptir þá engu máli að vera með fleiri en 14 stafi í nafni/heiti sínu.

2. Til geta verið hlutir sem eru úber skemmtilegir sem hafa svaðalega langt, langt nafn/heiti. En það er ekki til í svo miklum mæli.

--Ég er meira að segja farin að tala í sönnunum í stað þess að lesa sögu! Heimurinn er að farast! Forðið ykkur!
Hins vegar ætla ég að sjá til þess að maturinn minn verði ekki kolamoli (Ingibjörg er að grilla), svo að við sjáumst ;)

3 Comments:

Anonymous Anonymous öskrar...

Ég GAT commentað! jeeei... kannski því þú sagðir mér hvernig eeen ;) flott blogg hjá þér, algjörlega lýsandi dæmi á hvernig MR fer með mann! MR rúlar... Sé þig eeeeldress í jarðfræðinni á miðvikudaginn :D hehe

3:15 PM  
Anonymous Anonymous öskrar...

kolamoli!!! ég veit nú ekki betur en ég hafi ekki brennt neinn mat sem ég eldaði fyrir þig... kjúllinn smakkaðist að mínu mati mjööög vel!!!
Hlakkaru ekki til þegar gamla settið fer að utan??? ohh grill og næs næs:)
ibb

9:00 AM  
Blogger Eva öskrar...

Grill, grill og mikið af pasta :P nammi namm...

4:10 PM  

Post a Comment

<< Home