Fíllinn hún Nellý...: June 2006

Thursday, June 29, 2006

Hvernig í andsk. kemst maður aftur inn á Innu? Arg... Ég vil fá að vita í hvaða bekk ég sé. Þetta er fúlt. Og það sem var álíka slæmt var það að í gær var ég ótrúlega þreytt og sofnaði um 11. Klukkutíma seinna hringir síminn minn, ég reyndar hélt að þetta væri vekjaraklukkan en óneinei... Þetta var hún Jóna. "Í hvaða bekk ertu? Kíktu á það!" sagði hún. Ég reyndi en hahahha, ég veit ekkert hvað aðgangsorðið og leyniorðið á Innu er... þannig að :O
Erla perla á afmæli í dag. Ég og Anna keyptum köku og kerti. Heehehehhe... Þetta var geðveikt misheppnað en hey it's the thought that counts.
Ég fæ útborgað á morgun!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! and so on... Ástæða fyrir happiness er að ég fékk ekki útborgað síðustu mánaðatmót og ég er búin að vera broke! síðan þá eða í raun fyrr. Svo er ég í frí á laugardaginn... Nice. Kíkja í bæinn þá og eyða.

Bæ...

Jóna er í 4.P

Wednesday, June 21, 2006

Ég sit inni hjá mér að deyja úr kulda því að ég var að máta föt og er nú í mjög svo revealing, stuttum hvítum kjól með grænum doppum. Ég dýrka munstrið á honum. Sem sagt, mamma og pabbi komin heim. Komu í gær. Ég BAÐ þau um að vekja mig EKKI!! En nei, kl. 20 mín. yfir sjö öskrar mamma á mig "EVA! Ertu búin að taka þig til fyrir vinnuna?!". Ég sver, ég urraði til baka "NEI!!!". Svo öskraði hún meira og ég meira, þangað til að klukkan var átta.
Þá segir hún "Eva, hvenær áttu að mæta í vinnuna?"
ég "KLUKKAN NÍU!!!"
hún "Ó, ég er enn með klukkuna stillta á Kanarýa tímann!"
Djöfull hafi tímamismun! Þarna fór góður klukkutíma svefn til einskins!
Fékk afmælisgjöfina mína frá Ásdísi um daginn :) takk elskan, einmitt það sem ég vildi ;) hehehehe
Svo kemur Þóra heim eftir 4 daga! ARG! Ég hlakka svo til að sjá hana. Eins gott að hún sé með sveitta bóndabrúnku.
Svo verð ég að fara að redda mér IPod snúru í tölvuna mína. Búin að týna henni... og get ekki hlaðið Ipodinn! Týpíst!

Saturday, June 17, 2006

Allt í réttri röð.
1. Fjarðakaup er celeb-staður, þar koma meðal annars Hreimur úr landi og sonum, Björgvin Halldórs. og Halli úr Botnleðju. Eins og ég sagði, Celeb ;)
2. Takk fyrir að lána mér fyrir teinu á Mokka Elli. Við sem sagt hittumst "bekkurinn" á Mokka og ég ætlaði að vera svo menningarleg og fékk mér te. Elli, mitt var betra. Komst að því aftur! Að ég borða ekki hunang. Hunang = kandýflos + meiri sykur.
3. Tebó í gær. Ég var í fáranlega flottu dressi. Týndist hjá IKEA ásamt Fríðu, Þórey, Arnheiði og Jónu. Komum loksins á pleisið með hjálp frá R0gnu fluff, takk elskan. Elli og Arnheiður áttu reunion, aka. kysstust aftur. Ég fór víst á kostum. Fyrirgefið ef ég gerði ykkur eitthvað.
4. 17. júní. Fór með frænku minni og litla frænda í bæinn, góð ég. Við unnum Svíþjóð :D reyndar ekki... Töpuðum með einu en það er ekki issjúið. Við komumst áfram á HM en ekki Svíþjóð. Var síðan með systur minni og fjölskyldu í kvöld. Er núna bara að slappa af undir sæng. Eitthvað að veikjast.

Saturday, June 10, 2006

Klukkan er fjögur og það er óvíst hvort ég sé þreytt eður ei. Ég nenni ekki að fara að sofa en ég nenni ekki að vera vakandi. Erfitt líf. Takk fyrir mig Jóna, skemmtilegur bíltúr. Siggi, pant ekki. Elli, gaman að "ræna" þér. Anna, svefngalsi af bestu gerð. Og Ari, tótalý ;)
Sem sagt eyddi öllu kvöldinu inn í bílnum hennar Jónu, já hún er komin með bílpróf, og lenti næstum í árekstri. Ó já, rétt eftir að við slepptum Ella og vorum að keyra út úr götunni, *búmm* næstum því klesst. Jóna var í sjokki í smá stund. Fyrr um kvöldið hafði ég sem sagt farið út í Nóatún og þaðan fór ég og Jóna að ná í Önnu. Prufukeyrðum auk þess mix diskinn minn sem Jóna bað mig um að gera fyrir hana, hún nefnir hann "Spes diskurinn hennar Evu". Fórum og náðum í Sigga. Ætluðum að fá okkur ís en það var svo löng röð, Jóna vildi heldur fá sér að borða. Sá ekkert rangt við það. Fórum á Pizza Hut hjá Nordika, þar var lokað svo við fórum á sprengisand. Fylltar brauðstangir með piparost. Fullt af skemmtilegum atvikum m.a. ég og Anna að dæla bensíni. Ó joy ó joy. Fórum með Sigga heim um tólf. Systir mín hringdi og vildi endilega fá far niður í bæ. Æ hún Ingibjörg er svo mikið krútt. ARg... ég gleymdi að segja ykkur frá að við hittum litlu dúllurnar mínar, aka. Rögnu fluff og Viktoríu *****´s lover. Svo hentum við Ingibjörgu og Írisi út hjá Óliver. Fórum og "rændum" Ella og rúntuðum um Mosfellsbæ. Já, Mosfellsbæ. Skiluðum Ella og sóttum Ara. Svo hentu þau mér út. Og núna ætla ég að reyna að fara að sofa.
Takk fyrir mig.
Bæ.
6 tímar í að fara að elda. Jess...

Tuesday, June 06, 2006

“Don´t say goodbye, just dry your eyes.”
Gott fólk það er ekki einfaldara!
“Please speak slowly my heart is learning”
Tíminn líður en samt enda ég einhvern veginn alltaf inn á að hlusta á sömu hljómsveitina, það eða Disney-lög.
Þann 4.6. (aka. Síðasti poolday) fór ég til Tequila, ásamt fríðu föruneyti: Beggster og Stony. Seinna kom Swanpool og Yobush. Þær komu eftir að við 4 höfðum lent í svaðilförum um allan Sealpupscale (kópavog), syngjandi HÁSTÖFUM Drottningarlög. Tequila vildi keyra... hahhahaha. Val Kilmer lék stórt hlutverk í atburðum kvöldsins, það er að segja þegar Beggster spurði hvort leigjan ætti inni Saint og einhverja-aðra-rómantíska-mynd-með-Val-Kilmer. Þema kvöldsins var... *trommuhljóð*... BRAD PITT! Sem sagt leigðum við Fight Club og Interview with a vampire (Birta, ég vil samt fá hana lánað einhvern tíman). Sem sagt Swanpool er kerling og var alltaf að spurja mig hvað væri mikið eftir af Fight Club. Ég spyr bara: ,,Ertu alltaf svona hress á kvöldin?”. Sem sagt, Fight Club. Hátt í hálftími liðinn og hin þrjú spurja mig (ég var sú eina sem hafði séð hana): ,,Leikur Brad Pitt ekki í þessari mynd?”. Jújú, spes hlutverk meira að segja, mjög spes. Eftir hana fóru sem sagt Svana og Jórunn. Um Interview with a vampire hef ég tvö orð, TOM CRUISE! Hann á ekki heima þarna. Brad Pitt plumar sig ágætlega, þegar þú horfir á hann hugsar með ekkert sérstaklega “Brad Pitt, Brad Pitt, Brad Pitt...” en á hinn bóg, “TOM CRUISE, TOM CRUISE...” manninum er einfaldlega ekki ætlað að leika vampíru. Svo er hann svo lítill, tek það samt fram að ég hef ekkert á móti litlu fólki, ég á mikið af litlum vinum, nefni engin nöfn ;) En eftir þá mynd var Beggster svo æðisleg að skutlast með mig heim, inn í Hafnarfjörð, trúið þið því. Já, hún er gæðablóð. Sem sagt sögðum bæ við Steinar og þökkuðum Hrefnu fyrir okkur. Ég hefði nú samt viljað hafa prófað trampólínið :P
Að mikilvægara efni... Beverlyhills og Merlosplace er byrjað aftur! Við erum að tala um O.C. og One Tree Hill tíunda áratugsins! Ég hefði svo átt að vera upp á þeim tíma sem þættirnir eiga að gerast á, hehehheheh. Kidda fannst þau vera fáranlega klædd svo að Ingibjörg kommentaði um hvað fólki myndi finnast um Ryan (í O.C.) eftir tíu ár. Ég einfaldlega sagði eitt orð sem lét þau finnast þau vera orðin gömul. “Wifebeater”. Hvorugt þeirra hafði nokkurn tíman heyrt minnst á þetta orðatiltak. En Ingibjörg ef þú ert að lesa þetta þá hérna "wifebeater" fyrir þig og Kidda :) gjörið svo vel ;)

Sjúamst, þið megið endilega heilsa upp á mig á þriðjudögum, fimmtudögum og föstudögum eftir mat! :) Og svo auðvitað um helgar ;) hehehehhe

Thursday, June 01, 2006

Ég vorkenni litlum krökkum í dag varðandi sjónvarpsefni nú til dags.
Teiknimyndirnar eru stílaðar á annaðhvort yngsta hópinn (2-3) eða mun eldri (7-9). Annaðhvort eru þær á ensku eða fíll, api og fugl eru hopandi um syngjandi.
Sem fyrirmynd hafa þau Jóa Fel! Kommon... Viljið virkilega enda eins og hann? Með tattú á vinstri arminum sem segir "Jói Fel júníor", úff, minnir mig bara á tattúið hans Loga Geirs "L&i". Fyrirmynd mín þegar ég var mun yngri var Siggi Hall. Ég horfði á hann frekar en Simpson. Ég labbaði upp að mömmu minni þegar hún var að elda og sagði henni að setja meiri salt og meiri pipar í matinn því Siggi Hall sagði það alltaf. Mig langaði líka alltaf í hvítan pipar, Siggi Hall notaði hann alltaf.

Einkunnarorð föður míns þegar ég er að gera e-ð sem gæti meitt mig "Þú ferð með strætó upp á slysó!". Já, umhyggjusamur faðir hehhehe. Mig langar að fara í teygju- og fallhlífarstökk!

Sem sagt þá er ég vinnandi nánast alla daga vikunnar (mánud.-föstud. og annahvern laugardag) í fjarðarkaup. Mesti Hauka place til að vinna á. Það er fínt, kassi og bakaríið :) massíft stuð :)

Ég er farin að sakna krakkanna í MR.

Ég lifi svo óhugnalega atburðalausu lífi. Mig vantar einhvern til að bjarga mér