Fíllinn hún Nellý...

Wednesday, June 21, 2006

Ég sit inni hjá mér að deyja úr kulda því að ég var að máta föt og er nú í mjög svo revealing, stuttum hvítum kjól með grænum doppum. Ég dýrka munstrið á honum. Sem sagt, mamma og pabbi komin heim. Komu í gær. Ég BAÐ þau um að vekja mig EKKI!! En nei, kl. 20 mín. yfir sjö öskrar mamma á mig "EVA! Ertu búin að taka þig til fyrir vinnuna?!". Ég sver, ég urraði til baka "NEI!!!". Svo öskraði hún meira og ég meira, þangað til að klukkan var átta.
Þá segir hún "Eva, hvenær áttu að mæta í vinnuna?"
ég "KLUKKAN NÍU!!!"
hún "Ó, ég er enn með klukkuna stillta á Kanarýa tímann!"
Djöfull hafi tímamismun! Þarna fór góður klukkutíma svefn til einskins!
Fékk afmælisgjöfina mína frá Ásdísi um daginn :) takk elskan, einmitt það sem ég vildi ;) hehehehe
Svo kemur Þóra heim eftir 4 daga! ARG! Ég hlakka svo til að sjá hana. Eins gott að hún sé með sveitta bóndabrúnku.
Svo verð ég að fara að redda mér IPod snúru í tölvuna mína. Búin að týna henni... og get ekki hlaðið Ipodinn! Týpíst!

4 Comments:

Anonymous Anonymous öskrar...

já ég meira að segja vaknaði við hrópin í henni!!!

11:57 AM  
Anonymous Anonymous öskrar...

þetta er sko ingibjörg

11:57 AM  
Anonymous Anonymous öskrar...

Hony, I'm home!!

3:47 PM  
Anonymous Anonymous öskrar...

Það var ekkert!!!

4:02 PM  

Post a Comment

<< Home