Fíllinn hún Nellý...

Saturday, June 10, 2006

Klukkan er fjögur og það er óvíst hvort ég sé þreytt eður ei. Ég nenni ekki að fara að sofa en ég nenni ekki að vera vakandi. Erfitt líf. Takk fyrir mig Jóna, skemmtilegur bíltúr. Siggi, pant ekki. Elli, gaman að "ræna" þér. Anna, svefngalsi af bestu gerð. Og Ari, tótalý ;)
Sem sagt eyddi öllu kvöldinu inn í bílnum hennar Jónu, já hún er komin með bílpróf, og lenti næstum í árekstri. Ó já, rétt eftir að við slepptum Ella og vorum að keyra út úr götunni, *búmm* næstum því klesst. Jóna var í sjokki í smá stund. Fyrr um kvöldið hafði ég sem sagt farið út í Nóatún og þaðan fór ég og Jóna að ná í Önnu. Prufukeyrðum auk þess mix diskinn minn sem Jóna bað mig um að gera fyrir hana, hún nefnir hann "Spes diskurinn hennar Evu". Fórum og náðum í Sigga. Ætluðum að fá okkur ís en það var svo löng röð, Jóna vildi heldur fá sér að borða. Sá ekkert rangt við það. Fórum á Pizza Hut hjá Nordika, þar var lokað svo við fórum á sprengisand. Fylltar brauðstangir með piparost. Fullt af skemmtilegum atvikum m.a. ég og Anna að dæla bensíni. Ó joy ó joy. Fórum með Sigga heim um tólf. Systir mín hringdi og vildi endilega fá far niður í bæ. Æ hún Ingibjörg er svo mikið krútt. ARg... ég gleymdi að segja ykkur frá að við hittum litlu dúllurnar mínar, aka. Rögnu fluff og Viktoríu *****´s lover. Svo hentum við Ingibjörgu og Írisi út hjá Óliver. Fórum og "rændum" Ella og rúntuðum um Mosfellsbæ. Já, Mosfellsbæ. Skiluðum Ella og sóttum Ara. Svo hentu þau mér út. Og núna ætla ég að reyna að fara að sofa.
Takk fyrir mig.
Bæ.
6 tímar í að fara að elda. Jess...

2 Comments:

Anonymous Anonymous öskrar...

Takk fyrir kvöldið í gær... ég er stolt af bitch-slappinu þínu ;)
Fyrst ég er Ragna fluff þá ert þú Eva eyrungahárkolla...
eða Eva glimmerauga...
Síja

12:23 PM  
Blogger Eva öskrar...

Úff, það var virkilega barnalegt af mér, ég geri mér grein fyrir því. Og ég vil vera Eva glimmerauga ;)

4:48 PM  

Post a Comment

<< Home