Fíllinn hún Nellý...: July 2006

Monday, July 31, 2006

Hef ég sögu að segja ykkur eða hvað?...
Sem sagt þá fór ég með Þóru á Sigur Rós í gær. 20 mín yfir 8 keyrir pabbi minn mig til heim til Unnar (stóru systir hennar Þóru). Unnur var komin aftur úr Sigur Rósar fyrirpartýi til að svæfa Önju en ætlaði að reyna fá að leggja aftur á sama stað svo hún ætlaði að henda okkur (mér, Þóru og Ingu Stellu (vinkonu Unnar)) út fyrir stuttu fyrir ofan. Ok allt í lagi með það. Við leggjum af stað, svo komum við á ljós og Unnur stoppar fyrir okkur, svo við komumst út. Jæja, Inga Stella var í farþegasætinu fram í og þóra fyrir aftan hana, ég fyrir aftan Unni. Þóra fer út og ég er hálf út þegar að Inga Stella skellir hurðinni (hjá sér, 4 hurða bíl). Allaveganna Unnur heyrir eitthvað illa með hægra eyranu en heyrir einhvern skell svo hún heldur að allir eru komnir út og keyrir af stað! Á meðan ég er hálfnuð út úr bílnum!! Veit ekki alveg hvað gerist en ég enda liggjandi á gangstéttinni, í hláturskasti. Er víst ótrúlega heppin að ég fékk bara einhverja skrámu og rispur. Allt í lagi með mig löbbum við áfram. Löbbum fram hjá sjúkrabíl, Þóra bendir mér á að mér blæðir (úr skrámunni). Svo afhverju ekki bara að fara í sjúkrabílinn og fá sér eitt stykki plástur? Jújú maður gerði það. Annars var þetta eitt skemmtilegasta kvöld sem ég man eftir! Ég, Þóra og Inga Stella skemmtum okkur æðislega! hehehhe...

Eva.

Sunday, July 30, 2006

Halló allir saman :) ég og þóra hérna...

Ég sá Guðjón sögukennara í fjarðarkaup um daginn OG ég náði sumarmarkmiði mínu! ég afgreiddi björgvin halldórs. OMG! tótallý.

Sem sagt mér og þóru leiðist. ég er að fara í afmæli hjá 2ja ára frænda mínum á eftir!

Tebó í gær. Ég bakaði pizzur, fólk mætti fátt. Hrefna á killer shoes.
lítið batterý eftir.

bæbæ.

Hrefna... núna þarft þú að blogga!

Friday, July 21, 2006

Liggjandi í rúminu mínu, í dimmunni, blastandi tónlist sem byrjar á "t". Gerist ekki betra. Ég er svo þreytt. Ætla að reyna að sofna eitthvað fyrr í kvöld. Afhverju sé ég það samt ekki gerast?...

Það var crazy að gera í vinnunni í dag! Ég fann þokkalega fyrir þessari huge ábyrgð sem liggur á mér. Meina, ég sá til þess að það var til nógu mörg brauð fyrir verðandi útilegu-ferðalanga. Til dæmis 120 heimilisbrauð heil kláruðust, 90 heimilisbrauð hálf, 200 og eitthvað af pylsubrauðum og ég ætla ekki einu sinni að fara út í hamborgarabrauðin. Ég og Erla eigum eftir að drukkna á föstudeginum fyrir verslunarmannahelgina! Ég slapp samt við örtröðina við kassana :P Ég fór í bakaríið eftir mat. Svo er það bakaríið aftur á morgun.

Það er tvennar manneskjur sem koma alltaf að kaupa á morgnanna í fjarðarkaup og guð minn góður! þær fara í taugarnar mínar! Önnur kaupir alltaf 3-4 FK-brauð og skiptir sér ekkert af því þó hann/hún þurfi að fara inn á lager sjálfur/sjálf að ná í þau. Hin skammast í manni fyrir að flatkökurnar séu ekki komnar! Og báðar koma fyrir kl. 9. áður en það er opnað! labba inn starfsmannameginn og svo kvarta þær að ekki sé búið að opna kassa 5mín. í 9! Fávitar! Varð bara einfaldlega að deila þessari innbyrgðri reiði minni með ykkur.

Verslunarmannahelgin... lítur út fyrir að vera óviss... ég veit ekki hvað ég er að fara að gera? Kannski verð ég bara í bænum. Nenni/vil það ekki. Er samt að vinna á föstudeginum til 7. (aka. hálf 8).

úff úff... Magni "okkar" fékk uppklapps lagið :P töffari. En kommon, slepptu gleraugunum!

Ég er með svona smá spennuleika í maganum að byrja aftur í skólanum og hitta allt frábæra fólkið sem er þar! Samt svo langt þangað til...
Ég ætla að reyna þröngva bókunum mínum upp á busann Hafdísi :P hehehhehe.

Svo er ég að pæla að redda húsinu mínu auðu, ekki þessa helgi heldur næstu, og halda grill-party fyrir bekkinn. Hugsun...

Þegar ég fæ næst útborgað ætla ég svo að kaupa mér feit merkja-sólgleraugu! Missti mig með Þóru í sólgleraugnabúðinni í Smáralindinni. Sem minnir mig á það. Ég keypti mér geðveika, gula, hæla skó. Þegar að markmiðið er að kaupa bol handa/fyrir Þóru, eyði ég í mig. Ég og Anna pöntuðum okkur pizzu í hádeginu í dag :P hahhahaha...
"uuuu... voruð þið að panta pizzu?" Ég mun aldrei gleyma þessu :P

Um daginn kom kona í gömlum sófa á kassa til mín. Ég er ekki að grínast. Jakkinn hennar var úr sófa-klæðningarefni. Yndislegt :)

En ég er farin núna. Nenni ekki að halda áfram að skrifa eitthvað óáhugavert bull.

Sjáumst!

Wednesday, July 12, 2006

I got down and dirty í vinnunni í dag.
Smurði einhverju svörtu -smurolíu, hver veit?- í vestið mitt og mér leið eins og bifvélavirkja/trukkalessu.
Mér líður samt eins og badass fyrir það að ganga með hníf á mér í vinnunni -reyndar bara dúkahnífur-.
Kláraði ökuskóla 2 áðan. -Fyrir þá sem eiga eftir að fara í ökuskóla, er mun skemmtilegra að fara með einhverjum sem maður þekkir!-
Hún Katrín er svo gáfuð. Það var ein spurning á prófinu og svarmöguleikarnir voru eftir farandi:
*Vínandi fer fyrr úr blóði með því að drekkja sterkt kaffi.
*Vínandi er fyrr að fara úr blóði eftir að hafa sofið.
*-eitthvað sem var rétt-

Katrín krossaði við alla möguleikana!
Hins vegar veit hún hve mikið súrefni við nýtum úr súrefninu sem við öndum að okkur. Heil 21%!

Ég ætlaði líka alltaf að segja ykkur að henni Þóru Sif var boðið heim til stráks síðasta föstudag. Línan var "Viltu koma heim til mín og skoða frímerkjasafnið mitt?". Krúttlegt en hún sagði "NEI!". Skil hana vel.

Mér finnst síðan þetta svo sætt að ég verð að henda einu svona inn...



...bæ

Thursday, July 06, 2006

Tommy Lee - "Say something in Icelandic. How do you say hallo in Icelandic?"
Magni - "...Halló"
Hahahhahah, snilld, fávita Tommy Lee :P
Ég var sem sagt ein af, örugglega, fjölmörgum Íslendingum sem vakti frameftir til að fylgast með honum Magna "okkar".
Dómur minn á söng/framkomu hans er þess:
Allt í lagi... Hann á að geta mun meira. En hvort sem það var taugaóstyrkni eða stress, þá þarf hann að bæta framkomuna til muna! Hann var þó betri en þarna Chris, sá sem tók "Roxanne". Guð minn góður, hvað gerði maðurinn við lagið sem mér finnst hið besta lag og söngla oft með...? Nærri eyðilagði það með mjög svo lakri útfærslu. Ég held að Magni eigi alveg eftir að haldast inni þessa viku og fær hann annað tækifæri til að sanna sig.

Fór í bíó á mánudaginn. "Lake house". Hún er ótrúlega falleg og aawwww... mynd. Ég held að Arnheiður hafi rétt fyrir sér. Ég hef orðið eitthvað væmnari eftir að hafa horft á "Notebook". Til dæmis missti ég mig algjörlega þegar ég sá James Blunt taka "Good Bye My Lover" hjá Oprah. Maður sá svo tárin í augun á honum, að það snerti mann.

Birna er komin heim :)

Ég er í 4Y. Og Jóna er í 4T ekki "P".

Wednesday, July 05, 2006

Sunday, July 02, 2006

Ég fór í útilegu í gær.
Ferðafélagar mínir voru Ásdís og Þóra Sif. Arnheiður ætlaði líka að koma en hún var veik. Við fórum á Laugarvatn, bara í svona tjill-ferð. Þetta var æðislegt. Synd að þú gast ekki verið með Arnheiður.
Að venju var ég á síðustu stundu með allt. Ásdís með allt út planað. Og Þóra... Þóra kom með sósuna.
Á leiðinni heim keyptum við okkur ís í Eden. Og þar var ótrúlega creepy trúður! Hann spilaðu á úkelele. Mig langar að spila á úkelele. Þóra keypti apadót handa mér og Ásdísi. Mitt var hjólabrettalyklakippa.

Uppáhalds teiknimyndapersónan mín í augnablikinu er Guido úr Cars.