Fíllinn hún Nellý...

Friday, July 21, 2006

Liggjandi í rúminu mínu, í dimmunni, blastandi tónlist sem byrjar á "t". Gerist ekki betra. Ég er svo þreytt. Ætla að reyna að sofna eitthvað fyrr í kvöld. Afhverju sé ég það samt ekki gerast?...

Það var crazy að gera í vinnunni í dag! Ég fann þokkalega fyrir þessari huge ábyrgð sem liggur á mér. Meina, ég sá til þess að það var til nógu mörg brauð fyrir verðandi útilegu-ferðalanga. Til dæmis 120 heimilisbrauð heil kláruðust, 90 heimilisbrauð hálf, 200 og eitthvað af pylsubrauðum og ég ætla ekki einu sinni að fara út í hamborgarabrauðin. Ég og Erla eigum eftir að drukkna á föstudeginum fyrir verslunarmannahelgina! Ég slapp samt við örtröðina við kassana :P Ég fór í bakaríið eftir mat. Svo er það bakaríið aftur á morgun.

Það er tvennar manneskjur sem koma alltaf að kaupa á morgnanna í fjarðarkaup og guð minn góður! þær fara í taugarnar mínar! Önnur kaupir alltaf 3-4 FK-brauð og skiptir sér ekkert af því þó hann/hún þurfi að fara inn á lager sjálfur/sjálf að ná í þau. Hin skammast í manni fyrir að flatkökurnar séu ekki komnar! Og báðar koma fyrir kl. 9. áður en það er opnað! labba inn starfsmannameginn og svo kvarta þær að ekki sé búið að opna kassa 5mín. í 9! Fávitar! Varð bara einfaldlega að deila þessari innbyrgðri reiði minni með ykkur.

Verslunarmannahelgin... lítur út fyrir að vera óviss... ég veit ekki hvað ég er að fara að gera? Kannski verð ég bara í bænum. Nenni/vil það ekki. Er samt að vinna á föstudeginum til 7. (aka. hálf 8).

úff úff... Magni "okkar" fékk uppklapps lagið :P töffari. En kommon, slepptu gleraugunum!

Ég er með svona smá spennuleika í maganum að byrja aftur í skólanum og hitta allt frábæra fólkið sem er þar! Samt svo langt þangað til...
Ég ætla að reyna þröngva bókunum mínum upp á busann Hafdísi :P hehehhehe.

Svo er ég að pæla að redda húsinu mínu auðu, ekki þessa helgi heldur næstu, og halda grill-party fyrir bekkinn. Hugsun...

Þegar ég fæ næst útborgað ætla ég svo að kaupa mér feit merkja-sólgleraugu! Missti mig með Þóru í sólgleraugnabúðinni í Smáralindinni. Sem minnir mig á það. Ég keypti mér geðveika, gula, hæla skó. Þegar að markmiðið er að kaupa bol handa/fyrir Þóru, eyði ég í mig. Ég og Anna pöntuðum okkur pizzu í hádeginu í dag :P hahhahaha...
"uuuu... voruð þið að panta pizzu?" Ég mun aldrei gleyma þessu :P

Um daginn kom kona í gömlum sófa á kassa til mín. Ég er ekki að grínast. Jakkinn hennar var úr sófa-klæðningarefni. Yndislegt :)

En ég er farin núna. Nenni ekki að halda áfram að skrifa eitthvað óáhugavert bull.

Sjáumst!

2 Comments:

Anonymous Anonymous öskrar...

auhj eva! Þetta blogg var dúndur!! og já, endilega grillpartý, það væri tryllt;þ kánt mí inn!
-hrefna

9:24 PM  
Anonymous Anonymous öskrar...

huh! ætlaru að redda húsinu þínu fríu fyrir bekkinn??! hvað með okkur!!!? útskilningurinn þinn!!!!

en ég er ekki komin með plön fyrir verslunarmannahelgina, kem heim úr bústað líklegast á föstudeginum, ætti að vera að vinna en Tinna vildi vinna þannig að ég samþykkti og fékk frí í staðinn! hvað segiru! eigum við að skella okkur eitthvert þegar þú ert búin að vinna?? finnum einhvern með bíl og svona og þá er þetta komið! ok!? þá er það ákveðið!!!:D

sé þig á eftir!

5:35 AM  

Post a Comment

<< Home