Fíllinn hún Nellý...: September 2006

Monday, September 11, 2006

hæ :)
Busaballið var síðasta fimmtudag. Það var æðislegt! :D
Crazy stemming, allir með glowsticks og bara fjör! :D
Skólinn og handboltinn byrjaðir á fullu svo líf mitt er nánast komið í sömu rútínu og árin áður.
Hnéin og olnbogarnir mínir eru farin að fá þennan fallega blá/fjólublá lit á sig aftur.
Sveinbjargarmyndirnar á miðvikudaginn. Eins gott að maður fá góða mynd af sér, mynd þar sem að maður er úber sæt ;)
Hrefna beiler ætlar að fara sem skiptinemi næsta ár. Ég læt eins og ég hafi ekki heyrt þetta!!!!
Annars er maturinn minn orðinn til og ég er svöng.
Later :*

Tuesday, September 05, 2006

Var á Bloodhoundgang tónleikunum fyrr í kvöld! Fokk hvað þetta var mikil GEÐVEIKI! Og oj svo sveitt. Ef fólki fannst tebóið á síðast liðnum laugardegi sveitt, þá nei, þetta var svo 100000000 sveittara. Sérstaklega þegar gaurar berir að ofan nudduðust upp að manni og svitinn þeirra smurðist á mann. Svo þegar þeir (Jimmy Pop og Co.) tóku gömlu lögin þá missti ég og Þóra okkur! Maður eignaðist vini vinstri, hægri. Einn hét Davíð.
Svo voru allir að öskra "George Bush SUCKS!" og vá, gæsahúð maður! hahhaha. Það er kominn nýr "ælustrákurinn" það er hann Finni sem renndi sér yfir ælu á gólfinu.
Eftir tónleikana rákust ég og Þóra á Jón Grétar! Við gáfum honum samlokuknús, yummi ;) vel sveittar! Hann vildi samt ekki Kinnast mér betur?... Wonder why...
Much love
-EVA

Friday, September 01, 2006

Hey kiddós!
Skólinn... vika búin og nokkuð fínt. Samt ekkert kakóland en það á að bæta úr því á mánudaginn. Grill á morgun :) mmmmh.... ég er að spá í að fara með kjöt. þar samt þá að fá einhvern til að grilla það fyrir mig :P ég er grillaumingi! Busaballið á fimmtudaginn. CRAAAAZY stuð á það eftir að vera!!!
Farin að borða subway.
laaaaaater!