Fíllinn hún Nellý...: October 2006

Thursday, October 26, 2006

Ertu ekki að djók?
En eitt rippoff-ið í sjónvarpi. Frægir í formi (eða e-ð álíka) og Gegndrepa. Þegar það kemur íslenskt "How to look good naked" þá verður mér nóg boðið.
Ég er að fara annars í bíó í kvöld. Já, hún Þóra ætlar að bjóða mér á "Telladegas nights" (veit ekkert hvort ég sé að skrifa þetta rétt...) úff, popp og gos... mmmm...
Á morgun er ég síðan að fara að keppa.
HAUKAR - fh
Ásvellir, kl.20:00
ég er svöng.
sjáumst,
EVA

Monday, October 23, 2006

Kominn tími á blogg.
Það er löngu kominn tími á blogg.
Og í þetta skiptið verður þetta í bitri kantinum.

Fyrir viku var ég veik! Og þegar ég verð veik þá er það ekkert pínku. Oj nei nei. Hálsinn minn var bólginn, það að hægra meginn sást ekki hvar kjálkinn á mér var. Það var ógeðslegt. Ég fór til læknis á mánudeginum. Hann bannaði mér að fara í skólann og lét mig fara í blóðtöku daginn eftir. Til að tjékka hvort ég væri með einkirningssótt. Hann sagði að ég mætti fara í skólann í fyrsta lagi á fimmtudeginum og að ég mætti EKKI keppa á föstudeginum. Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað ég var ótrúlega fúl! Fyrsti leikur í tímabilsins! Ohhhh... Svo mátti ég heldur ekki fara í Herranótt. Þegar Eva hefur ekki samskipti við annað mannfólk en fjölskyldu sína í 3 daga og má ekki fíflast og fara á æfingar þá verður Eva fúl.
Í dag fór ég í efnafræðipróf. Eftir að hafa staðið fyrir framan ljósritunarvélina í svona 5 mínútur að reyna að ljósrita efnaformúlublaðið hans Árna þá fatta ég að það vantar pappír í vélina. Bjargaði því reyndar en svo ljósritaði ég á vitlausan hátt. Það kom fyrir rest. Fór í prófið, vúhú, ekki búin að læra rass! Prófið byrjar, fokk, ég var ekki með vasareiknir. 10 mínúter búnar, fokk, lotukerfið mitt var ofan í töskunni minni. Það reddaðist samt, takk Birna.
En það sem reitti mig mest til reiðis í dag var Herranótt! Já, ég sem var búin að bíða nú í tvær vikur til að fíflast þarf að bíða í einn dag í viðbót! Nú hugsið þið kannski "Ugh, þetta er bara einn dagur. Hvað er hún að nöldra yfir?". Ef þið hugsið svona þá þekkið þig mig ekki baun. Ég þarf minn fífl-tíma. Tók smá út eftir að ég var veik með að setja glimmer yfir Ragnar, Árna og Ella. :D hehhehehhe.
En núna þarf ég að klára að lesa "Stikker". Þetta er fyrsta danska bók sem mér finnst alveg ágæt. Bara nokkuð fínt að lesa hana. Ég hélt ég myndi aldrei segja þetta um danska bók. hehehhehe.

Ok, kannski var þetta ekki alveg eins biturt blogg og ég bjóst við að skrifa.

Grande besos,
Eva