Sokkaball 4.bekkjar 2006-7.
Það var haldið í gærkvöldi á Flúðum. Heppnaðist vel í alla kanta :D
Hefði hins vegar geta farið svoooo illa... S.s. þá var það mitt job að redda ódýrri rútu, well ódýrari rútu. Ekki málið, hins vegar sendi ég manninum með tengslin sms hvort rúturnar komi ekki sirka 15mín fyrir 5, fyrir fram MR. Og þá var babb í bátnum. Ég á að hafa ekki staðfest samninginn við rútufélagið! FOKK, var það eina sem ég gat hugsað næstu 2 og hálfan tíma meðan ég var að vinna og þessi elskulegi maður reyndi að laga þetta fyrir og redda þessu. Þetta fix-aðist sem betur fer! Annars hefði ÉG verið dauð! Dauð og lúbarin af hátt í 95 krökkum. Allaveganna, kl.5 mættu rúturnar og fólk dreif sig inn í þær til að halda lífi í þessum kulda sem var. Rúturnar voru s.s. fullar af krökkum, kóki, pulsum (já pUlsum), sósum, steiktum lauk, hátölurum, ljósum og tæknistöffi. Stuttu eftir að rútuferðin hófst stemmarinn hjá mínum elskulega bekk. Það var sungið og dansað og fækkað fötum v/hita. Þá var reynt að fá rútukeyrarann til að lækka hitann, hann sagðist ætla að reyna að gera það, eftir hálftíma tókst það og seinni partinn af rútuferðinni var frekar kalt í rútunni en það var allt í lagi enda voru allir (nánast allir) með lopapeysu uppi við. Svo var loksins komið til Flúðar, farið var strax að kynda í grillinu og á meðan við vorum að grilla og gera allt reddý, var bara kósý hjá hinum talandi saman. Eftir að allir voru svo búnir að borða og harmónikkuleikarinn kominn voru öll borð í salnum færð, fólk fór í ullarsokkana og lopapeysurnar og byrjað var að dansa. Fólk var misjafnt gott að dansa en t.d. má nefna að Andri Snær var með taktana í lagi allaveganna sagði Haukur leikifimiskennari það og þar sem ég er með tvo vinstri fætur þá trúi ég honum. Dansað var polka, ræl og skottís og svo hringdans. Mér sýndist allir vera að skemmta sér svakalega. Þegar dansinum lauk var farið í REIFSUND (þeir sem voru með sundföt eða fengu lánuð). En Jónatan og Jói höfðu sett upp ljós og hátalar og svona tæknistuff við sundlaugin meðan við grilluðum. Takk kærlega fyrir það strákar. Hefði varla geta orðið betra og skemmtilegra. Eftir fáranlega mikið af dans í lauginni var farið upp úr og þrifið sig. Svo var gengið frá salnum og svo allir í rúturnar og lagt af stað heim. Eftir að Raggi fór út á Selfoss sofnaði ég og vaknaði ekki fyrr en Berglind potaði í mig hjá Tjörninni. Við vorum komin heim um 2. Svo keyrði Jóna heim í fyrsta sinn í snjó.
Bara takk allir sem komu á ballið.
-Eva