Fíllinn hún Nellý...: December 2006

Friday, December 15, 2006

*Prófin eru búin
*Ég er búin að taka til inni hjá mér að mestu megni
*Búin að kaupa allar jólagjafir nema eina og hálfa
*Fyrirpartý fyrir jólaballið verður hjá mér
*Jólaballið er á mánudaginn
*Ég er að fara í klippingu á mánudaginn
*Ég byrja að vinna á fullu á morgun kl.14:30
*Ég fæ einkunnirnar á miðvikudaginn... held ég
*Ég á frænku eða frænda á leiðinni í heiminn :)
*Ég er í fríi þá 25,26 og 27 des.
*Ég er svöng
*Ég er að pæla að vera löt og gera ekkert í kvöld
*Ég ætla að sofa út í fyrramálið.
*Var ég búin að segja að prófin eru búin ;)!!!!
*Sjáumst elskurnar :*
*EVA

Sunday, December 10, 2006

Lesin stærðfræði á morgun. ég er ekki búin að lesa nóóóóóóógu mikið, fokk! Rafmagnið fer af á svona 10 mín. fresti hjá mér því mamma er búin að OF skreyta garðinn! Hélt þetta væri ekki hægt.
Popular (þáttur) er súper... man einhver eftir honum??

einungis 4 próf eftir...
2 stærðfræði
1 íslenska
1 enska

Alveg að verða búið!!!

x x x

Saturday, December 02, 2006

Sælar.
Fór á Magna og félaga í gær, TAKK fyrir mig Þóra og familía :) kisses.
Svona til að segja ykkur aðeins frá því. Sem sagt þá bauð pabbi hennar Þóru mér með þeim Þóru og mömmu hennar á tónleikana. Stúka ;). Húmor tónleikanna voru þrennir!
3) Klöppum fyrir tæknimönnunum!

2) Dömur mínar og herrar, Í Svörtum Fötum!

1) Gaurinn sem sat nánast hliðin á mér sem var að RIFNA úr spenning.

hahahhahahha.
Annars voru tónleikarnir mjög góðir :)

Ég er að pæla... þegar fólk er e-ð eitt úti og það fer að vanga og það er ekki tónlist, er það ekki e-ð smá skrítið? Einnig ég hef aldrei séð stelpu/konu vera kyssta og annar fótur hennar fer upp í loftið, í raunveruleikanum. En samt gerist þetta í "Princess Diaries 2", sem btw er meðal fáranlegustu mynda. En samt verð ég að viðurkenna að ég myndi ekkert segja "NEI" ef mér væri boðin prinsessu-titill :P ehhehehhehehe. Ætli það sé ekki satt að allar stelpur vilji vera prinsessur?

Að öðrum fréttum. Prófin byrja á mánudaginn.
  • mánudagur - saga
  • þriðjudagur - efnafræði
  • miðvikudagur - spænska
  • fimmtudagur - danska
  • föstudagur - líffræði

  • mánudagur - lesin stærðfræði
  • þriðjudagur - ólesin stærðfræði
  • miðvikudagur - FRÍ
  • fimmtudagur - íslenska
  • föstudagur - enska

Sem sagt, skemmtilegar 2 vikur sem eru framundan ;) hehehhehe

16. desember byrja ég svo að vinna eins og brjálaður motherfu**er. En að lokum er það jólaballið sem verður haldið 18. desember :D:D:D

Later gæes ;)