Fíllinn hún Nellý...: May 2007

Wednesday, May 30, 2007

Halló :D

Ellefu próf og ég náði þeim öllum! ;D

Hélt samt að ég væri fallin á árinu í gær. Ég var að vinna og svo var síminn til mín, var þetta skólinn? Nei, þetta var kona frá Patreksfirði, að panta brauðtertubotna fyrir kvennfélagið Sif sem er á Patreksfirði.
Ég er sem sagt byrjuð að vinna á fullu í Fjarðarkaup. Það er allt í lagi, nema konurnar í upplýsingunum eru að gera svo mikið mál í kringum það að ég sé að fara út í júní.
Það eru um það bil 25 dagar þangað til ég fer út, yay.

Annars er ekkert svakalega merkilegt búið að gerast...

-EVA

Thursday, May 24, 2007

Vúhú...
Ég er komin í sumarfrí, finally!
Búin í heilum "11" prófum. Þá er það bara að sjá hvort maður náði öllu.
ég fór á Pirates í gær. Hún er awsome! En hún er löng og þið ættuð kannski ekki að fara á hana kl. 11.
Svo er ég líka búin að klippa mig :)
en já.
við sjáumst bara

Sunday, May 20, 2007

Halló...
Þegar 9 próf eru að baki eru einungis 2 eftir! Og á þessum tímapunkti nenni ég einfaldlega ekki að læra meira! Á morgun er sem sagt efnafræði og svo er enska á miðvikudaginn. Já, kl. 14.30 á morgun mun ég vera að bíða eftir að komast í sumarfrí!
Á föstudaginn var fór ég í líffræðipróf, fólkið í bekknum er greinilega komið úr þessum próf-fílingi. Æ þið vitið, þegar að maður gengur inn í próf þá hefur maður alveg þögn, þegir bara og gerir prófið. Eeen nei ekki bekkurinn minn. Það nefnilega vantaði á prófið hvar við áttum að merkja það. Það gæti verið útaf því að Siggi Palli var yfir okkur að við vorum svona afslöppuð, það var skemmtileg tilbreyting.

En það skemmtilegasta er að á morgun mun ég eignast frænku :D:D:D Já, elskulega systir mín Ingibjörg mun eignast stúlku á morgun.


-EVA

Thursday, May 10, 2007

Ekki komumst við áfram í Eurovision í ár eins og manni datt alveg í hug. Djö. hafi þetta austurlandapakk... hehehhe... Ég er samt alveg pínku ánægð því þetta þýðir að ég geti lært ALLAN laugardaginn fyrir stæ. (finnið þið ekki bara fyrir kaldhæðninni). En í alvöru eurovision er ekkert skemmtilegt lengur. Ég man þegar ég var lítil og hamstraði á snakkinu horfandi á fólk syngja og hrista sig, klædd stundum fáranlegustu fötum... aahhh good old days, þ.e.a.s. maður var ekki að fara í 11 próf. Já gott fólk ég er ennþá í prófum. Ég tel mig samt góða að vera búin í 4 og finnst mér hafa gegnið nokkuð vel í þeim. Á morgun er aftur á móti spænska og já... við getum sagt að ég þurfi að bæta mig aðeins í henni. Mér finnst ég eiga skilið smá frí því ég var svo dugleg að læra undir sögu. Annars hef ég ákveðið að halda með Hvíta-Rússlandi í úrslitakeppni eurovision. Lagið er ketzý og ekki skemmir gaurinn fyrir, hann er alveg hönk ;). Hann gæti samt alveg verið laumu-hommi. Það myndi ekki koma mér á óvart.

Svo átti ég líka afmæli um daginn og er því komin með kosningarétt. Viti menn þegar ég kom heim í dag beið bara póstur til mín. Ég var orðin nokkuð spennt því ég fæ eiginlega engan póst nema þá e-ð tengt bankareikningum mínum og hvað ég eyði miklu af kortunum mínum. Allaveganna þá opnaði ég bréf og þetta voru bréf frá flokkum. Yay... já... Þau voru sem sagt að óska mér til hamingju með kosningaréttinn og hvöttu mig til að kjósa rétt aka. þau. Pfff... mér finnst þetta dáldið lágt hjá þeim farið að senda fólki bréf. Afhverju er það ekki búið að tala við mann fyrr þó maður væri ekki með kosningarétt og byggja upp traust og fylgni fyrir framtíðina? Ég myndi gera það, alveg eins og ef ég myndi stofna handboltafélag myndi ég byrja á stífum aga í byrjendaflokki bara til að koma krökkunum á bragðið.

En ég ætla að fara að halda áfram að læra undir spænsku. Á eftir að klára að fara yfir málfræði og síðan lesa Mundos II. Þetta verður skemmtilegt kvöld og morgunn.

Adiós,
Eva

Monday, May 07, 2007

eftir 4 klukkutíma og 20 mín. verð ég búin í síðasta dönsku prófinu mínu. (fyrir utan eitt munnlegt)

-Eva

Thursday, May 03, 2007

Ég vil fara að gráta...

Í dag var síðasti dagurinn minn sem partur af hinum svakalega "nördabekk" 4Y. Fyrir þá sem ekki vita innihélt 4Y krakkana úr 3E + (plús) Jónu og Kristján og - (mínus) Brynjar, Ylfu, Svönu og Jórunni. Ég elska bekkinn minn og ooohhhh ég á eftir að sakna allra svo svakalega mikið, vitandi það að ég á ekki eftir að geta spilað við strákana í næstum hverju einustu matarhléum, farið í snú-snú með stelpunum... Eftir 3 vikur og 11 próf verð ég hálfnuð með MR (að gefnu að ég nái öllu). Þetta líður allt of hratt, ég vil ekki að þetta taki enda! Ég er búin að eignast svo fullt af góðum og sætum vinum! Núna í ár fara fullt af þeim og takast á við ævintýri hægri - vinstri. Hvenær á ég eftir að hitta það fólk aftur? Á ég eftir að minnast þeirra líkt og ég gerði í gær með Jón Eðvald þar sem að ég sá hann í e-u blaði ungra samfylkingakrakka. Svo gerir átröskunar-auglýsingin þetta ekkert betra.
Ég er farin að mögulega að lesa líffræði, ef ekki þá ætla ég að fara að hlusta á Snow Patrol og gráta mig til svefns af söknuði bekkjarfélaga minna.
-Eva