Fíllinn hún Nellý...

Thursday, May 10, 2007

Ekki komumst við áfram í Eurovision í ár eins og manni datt alveg í hug. Djö. hafi þetta austurlandapakk... hehehhe... Ég er samt alveg pínku ánægð því þetta þýðir að ég geti lært ALLAN laugardaginn fyrir stæ. (finnið þið ekki bara fyrir kaldhæðninni). En í alvöru eurovision er ekkert skemmtilegt lengur. Ég man þegar ég var lítil og hamstraði á snakkinu horfandi á fólk syngja og hrista sig, klædd stundum fáranlegustu fötum... aahhh good old days, þ.e.a.s. maður var ekki að fara í 11 próf. Já gott fólk ég er ennþá í prófum. Ég tel mig samt góða að vera búin í 4 og finnst mér hafa gegnið nokkuð vel í þeim. Á morgun er aftur á móti spænska og já... við getum sagt að ég þurfi að bæta mig aðeins í henni. Mér finnst ég eiga skilið smá frí því ég var svo dugleg að læra undir sögu. Annars hef ég ákveðið að halda með Hvíta-Rússlandi í úrslitakeppni eurovision. Lagið er ketzý og ekki skemmir gaurinn fyrir, hann er alveg hönk ;). Hann gæti samt alveg verið laumu-hommi. Það myndi ekki koma mér á óvart.

Svo átti ég líka afmæli um daginn og er því komin með kosningarétt. Viti menn þegar ég kom heim í dag beið bara póstur til mín. Ég var orðin nokkuð spennt því ég fæ eiginlega engan póst nema þá e-ð tengt bankareikningum mínum og hvað ég eyði miklu af kortunum mínum. Allaveganna þá opnaði ég bréf og þetta voru bréf frá flokkum. Yay... já... Þau voru sem sagt að óska mér til hamingju með kosningaréttinn og hvöttu mig til að kjósa rétt aka. þau. Pfff... mér finnst þetta dáldið lágt hjá þeim farið að senda fólki bréf. Afhverju er það ekki búið að tala við mann fyrr þó maður væri ekki með kosningarétt og byggja upp traust og fylgni fyrir framtíðina? Ég myndi gera það, alveg eins og ef ég myndi stofna handboltafélag myndi ég byrja á stífum aga í byrjendaflokki bara til að koma krökkunum á bragðið.

En ég ætla að fara að halda áfram að læra undir spænsku. Á eftir að klára að fara yfir málfræði og síðan lesa Mundos II. Þetta verður skemmtilegt kvöld og morgunn.

Adiós,
Eva

1 Comments:

Anonymous Anonymous öskrar...

Eins gott að það líði ekki svona langt á milli blogga hjá þér þegar þú verður úti á Spáni!!! Systa verður að fá fréttir af þér;) oft... hehe
Gangi þér vel í prófunum... það sem eftir, þú rústar þessu snillinn minn.
lov ibb

8:59 AM  

Post a Comment

<< Home