Ég vil fara að gráta...
Í dag var síðasti dagurinn minn sem partur af hinum svakalega "nördabekk" 4Y. Fyrir þá sem ekki vita innihélt 4Y krakkana úr 3E + (plús) Jónu og Kristján og - (mínus) Brynjar, Ylfu, Svönu og Jórunni. Ég elska bekkinn minn og ooohhhh ég á eftir að sakna allra svo svakalega mikið, vitandi það að ég á ekki eftir að geta spilað við strákana í næstum hverju einustu matarhléum, farið í snú-snú með stelpunum... Eftir 3 vikur og 11 próf verð ég hálfnuð með MR (að gefnu að ég nái öllu). Þetta líður allt of hratt, ég vil ekki að þetta taki enda! Ég er búin að eignast svo fullt af góðum og sætum vinum! Núna í ár fara fullt af þeim og takast á við ævintýri hægri - vinstri. Hvenær á ég eftir að hitta það fólk aftur? Á ég eftir að minnast þeirra líkt og ég gerði í gær með Jón Eðvald þar sem að ég sá hann í e-u blaði ungra samfylkingakrakka. Svo gerir átröskunar-auglýsingin þetta ekkert betra.
Ég er farin að mögulega að lesa líffræði, ef ekki þá ætla ég að fara að hlusta á Snow Patrol og gráta mig til svefns af söknuði bekkjarfélaga minna.
-Eva

Ahhh ég elska 4.Y eeeeelskann!
Þú gleymdir mínus halldís :p
og gleymdir að spila við strákana OG mig!!!!
Við munum halda mögnuð 4.Y partý (þ.e. spilakvöld.. ) ÁN EFA.. þessi bekkur mun aaaaldrei deyja :D
æjjj.... ég græææææææt með þér! nostalgían er svo erfið..! 4. Y FOR LIFE...!
höldum bara möörg hehe "4. Y partý" í sumar;D úti að grilla.. og svona:)
Já, gerum það á meðan ég er ÚTI!!!
Já maður let´s do that... Eva.. þú verður bara í web cam eller sådan noget :D