Fíllinn hún Nellý...

Tuesday, June 19, 2007

Hæhæ,
það er búið að skíra litlu frænku mína og hún heitir Sara Sif Kristinsdóttir.

Annars er ég búin að eyða dögum mínum í Fjarðarkaup. Ef þið verslið í Fjarðarkaup og takið þátt í sumarleik Fjarðarkaups gætuð þið unnið ferð fyrir 4 til tenerife í 2 vikur + hótel. Jáhá!
En hvernig fallbeygir maður "Fjarðarkaup"? Er eignarfallið "Fjarðarkaups" eða "Fjarðarkaupa"? Ég held það fyrra, því þetta er bara ein búð það er ekki til nein önnur Fjarðarkaup en aftur á móti þá er orðið kaup fleiritöluorð...
Ég er líka búin að vera ágætlega dugleg að fara í körfubolta með nokkrum krökkum (í stafrófsröð; Árna, Berglind, Birna, Dabba, Finni og Tomma). Það er víst leiðinlegt að vera á móti mér því ég tudda... En aftur á móti er gott að vera með mér í liði... heheheh
Ég á eftir að vinna í 2 daga í viðbót, síðan fer ég út 23. Það styttist í þetta... Ég ætla að reyna að vera eitthvað aktíf í þessu bloggi til að geta látið fjölskylduna fylgjast með mér, hvort það sé ekki allt í lagi með mig :)

Bæbæ
-Eva

5 Comments:

Anonymous Anonymous öskrar...

... bara fjölskylduna?? Hvað með okkur vinina?

Annars þá rúlar körfubolti!

1:46 PM  
Blogger Eva öskrar...

Ert þú hrædd um að mér verði nauðgað?... hélt ekki...
Neinei... líka fyrir vinina (auðvitað) ;)

3:09 PM  
Anonymous Anonymous öskrar...

Þarna þekki ég systragenin... tudda í körfu!!! hehe úff eins gott að við verðum ekki saman í liði einhverntíman... Fólk myndi ekki vilja mæta okkur!!!
Jii ég er sko ekki að trúa því að þú sért að fara á morgun!!! Er ekki að fíla það... á eftir að sakna þín. En þú átt eftir að hafa ógeðslega gaman;)
Heyrði einmitt oft í auglýsingum frá fjarðarkaup: fjarðarkaupum!!! ég skildi það ekki því þetta er bara ein búð!!!

5:02 AM  
Anonymous Anonymous öskrar...

uhh já þetta er sumsé systir þín... ingibjörg

5:02 AM  
Anonymous Anonymous öskrar...

Sif... fallegt nafn!

3:21 PM  

Post a Comment

<< Home