Fíllinn hún Nellý...

Friday, October 26, 2007

Hæ,
á maður að reyna koma einhverju lífi í þetta blogg?

Skólinn er löngu byrjaður og vel hálfnaður. Um mánuður í jólaprófin og styttist.
Ég er ekki í handboltanum í ár. Ákvað að taka "break" frá honum allaveganna í ár vegna þess að þetta er næst síðasta árið manns í framhaldsskóla. Þessi tími er ekkert smá búinn að líða hjá. Það er eins og í síðustu viku að ég labbaði taugaóstyrk upp tröppurnar, hrædd um að þekkja ekki neinn.
Ég er bekkjarráðsmaður í 5.R en það er bekkurinn sem ég er í (dööhhh...). Þetta er náttúrufræði 2 bekkur, sem ég sé EKKI eftir að hafa valið eftir að vera búin að fara í þessa eðlisfræði tíma en annan hvern þriðjudag fer ég í ÞREFALDANN eðlisfræðitíma. Þrefaldur eðlisfræðitími er bara eitthvað sjúkt ferli sem enginn ætti að upplifa. Ég verð samt stúdent í eðlisfræði í enda ársins, af því gefnu að ég nái (7,9,13). Ég klára líka efnafræði, lífræna efnafræði, ensku og spænsku á árinu. Þannig að á næsta ári þá verð ég eingöngu í: Íslensku, stærðfræði, líffræði, sögu, jarðfræði, erfðafræði, leikfimi og tveim valgreinum (vonandi sálfræði og latínu). 6. bekkur á eftir að vera sweet!
Það er annars nóg að gera hjá Evu þessa dagana. Almennt að vera löt, hin ýmsu verkefni svo sem Njálu erindi, eðlisfræði skýrslu, líffræði skýrslu, ljóðamáls próf og fleira... Svo er það bekkjaráðið, við erum á fullu að skipuleggja MR fötin, fjáraflarnir og útskriftaferðina. Ég man að á þessum tíma fyrir ári vorum við á fullu að skipuleggja Sokkaballið. Ég bara vona að það heppnist jafnvel hjá 4.bekk núna og það gerði hjá okkur. Ég man að fólk var smá neikvætt út í Sokkaballið, það að skólafulltrúar væru með og þetta væri á vegum skólans og þar af leiðandi allt áfengi og tóbak bannað en fólk var mjög ánægt með ballið :)
Ég er með fingranna krosslagði fyrir sumarbústaðferð 5.R. Ef við förum þá verður geðveikt gaman. Ég bara veit það :D

sjáumst.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home